Þegar ég og Sigurgeir vorum lítil dreymdum við um að eignast
hvolp. Oft suðuðum við um það en aldrei var það tekið í mál. Einn
daginn mætti pabbi með eitt stykki sankti bernhards hvolp og sagði
okkur að við ætluðum að passa hann í 1 eða 2 daga. Við ákváðum að
stríða mömmu og segja henni að pabbi hefði gefið okkur þennan
hvolp. Hvort sem hún vissi það eða ekki að við vorun að
plata höfðum við sérstaklega gaman af þessari stríðni, því við
vissum að mamma vildi alls ekki hvolp og þá ALLS ekki
sanktí bernhards
Hvolpurinn átti að vera inni í þvottahúsi,
en um nóttina vældi hann svo mikið að ég stalst til þess að sækja
hann og tók hann upp í til mín. Um morguninn vöknuðum við
hvolpurinn í pissublautu rúmi, en hann hafði gert þarfir sína meðan
ég svaf. Ég var samt alsæl með að hafa sofið með hundinn hjá mér

Í dag segir pabbi mér að hann sé að fara að fá sér hvolp!
Loksins... fáum við ósk okkar uppfyllta, þó svolítið seint
Verð
nú samt að viðurkenna að ég er ansi spennt. Hann segist ætla að
hafa hann inni í forstofu og að hann megi ekki koma lengra inn og
svo ætlar hann að taka hann með sér í vinnuna á daginn, en þar
getur hann verið úti allan daginn. Hlakka ég til að sjá hvort hann
standi við þetta, en ég held að hann eigi eftir að dekra þennan
hund meira en nokkuð annað 
Annars vinn ég bara eins og brjálæðingur og hef ekki orku í
neitt þegar ég kem heim. Hjalti er ákveðinn að fara í
Kennaraháskólann og erum við búin að sækja um stúdentagarda. Hvað
er samt málið með það að vegna þess að ég er í HÍ og hann í KHÍ
erum við neðst á forgangslista bæði hjá stúdentagörðum HÍ og Bn
Á par að eiga minni rétt á íbúð ef einstaklingarnir eru ekki í sama
skóla... þetta finnst mér alveg fáranlegt og þyrfti að sameina
þetta í eitt félag það sem allir háskólanemar hafa sama rétt.
Leiguverðið er svo hátt í Rvk. að það er ekki fyrir nokkurn
mann að standa undir því eins og ég í 6 ára námi.
Helgin á svo að fara í hvíld og tiltekt, en ég er ekki enn búin
að ganga frá inni í herberginu minu. Ætlaði að byrja núna en nenni
því alls ekki.
Annars erum við að láta renna í pottinn
Það er líka þvílíkur
hiti úti.
Fór inn í gróðurhúsið hennar mömmu og váá ég fékk áfall....
Mamma fengi flogaveikiskast ef hún sæi það. Arfinn og illgresið
kemur á móti manni þegar maður opnar hurðina og það sést varla í
mold, enda orðin tvö ár síðan hún var eitthvað að vesenast í því
síðast. Mamma ég held þú verðir að fara að kaupa þér hús með garði

Ætla að fara að hjálpa pabba sem er að reyna að koma einhverri
reglu á þetta hús...