Dagrún

Læknanemi í blíðu og stríðu

27.12.2007 12:09:31 / dagrun85

Jólasnjór, jólasnjór, jólaskíðasnjór....

Ég er komin í ullarsokkana, flíspeysuna og íþróttabuxurnar. Allt er að verða til og nú bíð ég bara eftir að liðið mæti á Blönduós til að pikka mig upp :) Snjóbrettið og skórnir í forstofunni ásamt fötunum. Tókst nú að gleyma ýmsu fyrir sunnan og sumt á ég ekki til, en er að verða búin að fá allt í láni t.d. úlpu, snjóbuxur og sundbol :) Er nefnilega svo óheppin að eiga engar snjóbuxur heldur bara Kraft snjógalla, sem ég held ég myndi líta hálf bjánalega í á snjóbretttinu ;) Úlpan er svo með bilaðan rennilás...

Það er allt að fara á kaf í snjó hérna á Blönduósi, en á Akureyri er því miður ekkert svo mikill snjór... en þó nóg til þess að renna sér í :)

Svo á ég afmæli á morgun :) Hef aldrei fundist afmælisdagurinn minn merkilegur, enda hefur fólk yfirleitt ekki svo mikinn tíma til þess að fagna honum með mér. Líka flestir vinir mínir dreifðir út um allt land á þessum tíma árs. En vonandi verður hann sérstaklega skemmtilegur í þetta skiptið. Ég er búin að fá tvær afmælisgjafir nú þegar. Fékk frá ömmu og afa gjafakort og teppi undir jólatréið og svo fékk ég skó frá mömmu sem ég þarf nú að skila á Akureyri þvi þeir eru of stórir og ekki alveg í mínum stíl. Enda er frekar erfitt held ég að kaupa handa mér skó því ég er alveg super picky á þá :) þurfa alltaf að vera mjög stílhreinir og simple...

Jólin voru annars fín. Við vorum þrjú saman ég, mamma og Sigurgeir. Fékk rosalega flotta úlpu frá Hjalta (cintamani), æfingardress frá mömmu og svo fengum við Hjalti annað sameiginlegt sem var allt í búið. Takk fyrir mig :*

Ætla að fara að vekja bróður minn og biðja hann um að lána mér snjógleraugu... :)

Set inn einhverjar myndir næst!

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.12.2007 12:26:08 / dagrun85

Jólafrí...

Loksins loksins er ég komin í jólafrí. Hélt að sá dagur ætlaði aldrei að koma.

Gekk ágætlega í prófunum þó þau hafi verið ansi erfið í þetta skiptið. Hef ekkert gert nema læra síðustu vikurnar svo það er frekar lítið að frétta. Ég kláraði reyndar á þriðjudaginn og hafði þá tvo daga til að klára að gera ALLT fyrir jólin. Gekk reyndar rosalega vel fyrir utan það að einhver kort gætu komið aðeins of seint þar sem ég er að fara að hlaupa með þau niður á pósthús núna.

Annars svaf ég bara út í morgun og ætla svo að fara í ræktina á eftir. Svo er planið að fara og höggva jólatré á morgun :) Reyndar verður það jólatré bara áramótatré, en hvað með það... sportið er að höggva það niður, skreyta það og svo auðvitað lyktin.

Kem með góða færslu sem fyrst...

Dagrún


» 4 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  29  Alls: 88007
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 429 dögum
Áætlaður fæðingardagur