Við hjúin erum stödd á Blönduósi eins og er. Ákváðum að skella
okkur vestur til að fara í afmæli hjá pabba gamla.. en hann varð 44
ára í gær. Erum búin að hafa það rosalega gott. Hitta ættingja
mína, borða mikið af góðum mat og svo erum við LOKSINS búin að
þrífa bílinn og bónann. Þetta er bara allt annar bíll eftir þetta,
enda var hann vægast sagt orðinn viðbjóðslegur.
Fór líka aðeins yfir skápinn minn o.f.l. til að finna skóladót,
sem ég þarf að lesa fyrir inntökuprófið. Fann ég ekki þessa fínu
vinabók frá því í sjöunda bekk. Vá ég grenjaði úr hlátri. Þar var
rosalega flott ljóð eftir hana Rannveigu sem hljómaði
svona:
Dagrún er rosa sterk lemur stráka alla
sem hlaupa burt með magaverk
og stóra kúlu á skalla.
Reyndar var það gjörsamlega óskiljanlegt eftir því sem hún
skipti þessu upp í línur, en útkoman var þessi hjá mér eftir að
hafa lesið það nokkrum sinnum yfir.
Svo fann ég skóladagbækurnar mínar úr fyrsta og öðrum bekk í MA.
Þar má finna allt sem við brölluðum yfir árið og mjög góðar og
fyndnar samræður um strákamálin, djammið og fleira milli mín,
Andreu og Ástu. Þar komu nöfn eins og Hrói til sögunnar og fleiri
Skilji þeir sem skilja geta!
Nú er ég alltaf að pæla í hvað ég eigi að gera ef ég fer suður
eða ef ég verð á Akureyri. Á maður að kaupa sér íbúð eða leigja
áfram, sem ég er komin með nóg af. Þykir leiðinlegt að henda
peningunum mínum bara í eitthvað fólk og eignast aldrei neitt í
staðinn. Hvernig bíl á ég að kaupa mér ef ég enda á því að fara ein
suður og fleira og fleira. Eins og þið vitið verð ég að hafa allt
skipulagt fimm mánuðum fram í tímann svo sál mín er ekki alveg að
höndla þessa óvissu, en þrauka þó...
Nú þarf líka að fara að hysja upp um sig buxurnar og fara að
hittast. Er komin með nóg af því að sjá ykkur vinkonurnar/vinina
bara á nokkra vikna fresti!
En þangar til næst...
Dagrún