Þannig er nú það að næsta fimmtudag á ég pantað flug norður, þar
sem ég ætlaði að fara til Hjalta. Á að vera frí í skólanum á
föstudaginn, en nú eru bekkjafélagarnir að reyna að fá að halda
eðlisfræðiprófið þá, sem ég by the way er búin að ná að planta á
miðvikudaginn. Ég er svo ans... fúl yfir þessu að ég kom sjálfri
mér á óvart hversu ákveðin/frek ég get verið
Á morgun kemur
þetta samt allt saman í ljós, en vonandi fer þetta mér í hag.
Á morgun ætla ég að fara á Blönduós en um síðustu helgi komst ég
ekki vegna veðurs. Ætla því að drífa mig núna þar sem við verðum
næstum því öll fjölskyldan. Er orðin rosalega spennt yfir því
að hitta fjölskylduna en þó sérstaklega Sigurgeir því ég hef ekki
séð hann síðan í september. Hann er reyndar að koma norður til þess
að fara í jarðarför, en vinur hans dó um daginn. Hræðilegt

Var loksins dugleg og drattað mér í baðhúsið áðan. Ég var
eiginlega búin að gleyma hversu gott það er að vera að drepast úr
líkamlegri þreytu. Eitthvað annað en vanalega þar sem andlega
hliðin er venjulega alveg búin á því.
Er farin að halda að fólk geti fengið hausverk á því að hugsa of
mikið. Allt of mikið álag á heilann þessa dagana 
Ég er farin að hugsa allt of mikið til jólanna og ég virkilega
get ekki beðið eftir að komast í frí. Hitta alla, eyða einhverjum
tíma með Hjalta og bara slappa af og gera eitthvað sem ég gef mér
ekki tíma í þessa dagana. Annars þarf ég bara að þrauka fram í
miðjan febrúar, en þá tekur við eitthvað aðeins eðlilegri törn, sem
er þó örugglega erfið en kannski ekki alveg svona brjálað 
Sigríður Katrín kom til mín í dag og var að hlægja að því að
fjölskyldan hennar væru einu sem kommentuðu. Er farin að halda að
einu manneskjurnar sem lesi þetta séu Sibba og afleggjarar
Gott
að einhver nennir að fylgjast með mér, því ekki er það fjölskyldan
mín sem les þetta 
Hlakka annars til að hitta ykkur öll um jólin. Ætla að eyða
nokkrum dögum á Akureyri fyrir jól til þess að fara í heimsóknir og
hafa það náðugt hjá henni móður minni 
En ætla að fara að reikna eðlisfræði og pakka svo niður fyrir
morgun daginn.
Kv. Dagrún heilabrjótur...