Nóg að gera hjá mér eins og alltaf, en því miður er eitthvað að
netinu hjá pabba upp í Blöndu svo ég hef ekkert getað bloggað. Um
helgina vorum ég og Ranna báðar að vinna og auk þess Setta, en við
vorum með um 50 manns í mat. Það var brjálað að gera og vann ég í
fjórtán tíma á föstudeginum og fimmtán á laugardeginum (kl: 7-21 og
7-22). Var farin að verkja frekar mikið undir ilinni
En ég er
bara farin að bíða eftir laununum
Eins pabbi sagði.... ÞVí
meira sem maður nennir að hanga hérna því glaðari verður maður
þegar maður fær launin!
En ég og Ranna erum búnar að hafa mjög gaman hjá okkur og reynum
að gera gott úr dögunum.... og ekki í vandræðum með það því
ljósuhárin eru farin að segja til sín... Ákvað að skrifa nokkur
niður:
1) Ég og Ranna vorum að baka hlið við hlið þegar hún segir....
Ohhh ég missi alltaf skelina ofan í ... Ég gat ekki varist hlátri.
En hún átti þá við eggjaskurnin sem að einhverjum ástæðum hún
kallar skel
Hún gæti búið til sér orðabók þessi stelpa
2) Í gær hringdi síminn og ég hljóp til að svara og svaraði
auðvitað mjög kurteisislega : Blönduvirkjun Dagrún... En ég tók upp
vitlaust símtól
Ranna grét úr hlátri
3) Á fimmtudaginn vorum við að ganga taka vörur inni í bílskúr
sem voru að koma. Þegar við vorum loksins búnar að koma þessu á
kerru, ætlaði Ranna að opna lyftuna. Hún tosaði eitthvað í hurðina
og sagði síðan við mig með þessum tón þegar hún getur ekki gert
hlutina: " Dagrún, hurðin er læst". Ég sprakk auðvitað úr hlátri og
sagði henni að kalla á lyftuna því hún væri ekki á þessari hæð...
hehehe
4) Einn morguninn var Setta búin að vera að tala um að hún væri
að fara að halda gæsapartý fyrir mágkonu sína.. Seinna sama dag
segir hún að tiltekna helgi sé hún að fara í brúðkaup óg ég spyr "
Já ertu ekki að fara í giftingu hjá mágkonu þinni?" og hún svaraði
"Jú og líka hjá bróður mínum"... Góð Dagrún!!
5) Á laugardaginn vorum við búnar að vinna eins og brjálæðingar
því það átti að vera veisla um kvöldið. Fyrir matinn fórum við í
sturtu og í betri föt. Ranna fór upp til pabba síns í sturtu og
þegar hún var búin að koma sér í einhver föt og mála sig aðeins,
þannig að hún var sátt við útlitið, lagði hún af stað til baka. Hún
lokaði hurðinni á herberginu, sem by the way læstist, en var ekki
fyrr kominn út þegar hún gerði sér grein fyrir því að hún stóð bara
á brjóstarhaldaranum... H'un gleymdi sem sagt að klæða sig í
bol
Annars er ég að fara að keppa á eftir í Reykjavík og ég er svo í
fríi á morgun. Ákvað að taka mér einn dag alveg í frí
því ég er að fara að vinna þriðjuhelgina mína í röð og er
orðin MJÖG þreytt.
En ein saga í viðbót. Á fimmtudaginn þegar ég var
að keyra á fótboltaæfingu og sá loksins fram á það að geta mætt á
réttum tíma á æfingu heima, þá hljóp lamb upp á veiginn og
ég keyrði yfir það. Stuðarinn á bílnum brotnaði og
númeraplatan beyglaðist öll og auk þess beyglaðist einhver grind
við vatnskassann. Lambið var sem betur fer steindautt þegar
við tókum það út af veginum, en ég mætti of seint á
æfingu. Fólkið var voða fegið þegar við létum það vita af lambinu,
en eiga þessi lömb ekki að vera inn í girðingum eða hvað...
Þetta er stórhættulegt þegar þetta kemur hlaupandi inn á
miðjan veg!1
En verð að hætta....