Úfff... Reykjavík er erfið borg. Ég er búin að vera að keyra
meira en minna í allan dag. Ótrúlegt hvað þetta gatnakerfi þarna
ruglar mig stundum. Alltaf verið að breyta einhverju. Til dæmis í
dag vissi ég alltaf hvert ég átti að fara, en svo lenti ég oft
einhvers staðar allt annars staðar, en það bjargaðist alltaf. Tók
þá bara smá hring 
En já mér tókst að eyða svolitlum pening eins og venjulega þegar
maður fer til Reykjavíkur. Keypti mér hjálm, nýjan hnakk á hjólið,
tvenna skó og tvo boli. Á svo sem alveg fyrir því svo þetta var
minnsta mál 
Ég og Sigurgeir lögðum af stað um klukkan hálf tíu og komum
aftur klukkan tíu. Svo þetta er búinn að vera MJÖG langur dagur.
Við vorum bæði orðin svo þreytt á leiðinni heim að við tókum
nett flipp á græjunum og svona. Voða gaman
Býst við að þið
hefðuð ekki viljað þekkja okkur hefðuð þið verið þarna
En þið
hljótið að taka ykkar flipp út eins og aðrir... Efast samt um að
þið getið toppað okkur 
Tannlæknirinn minn vill ekki enn leyfa mér að losna við þennan
góm og ég er að verða alveg brjáluð....! Má reyndar sleppa honum í
byrjun í einn tíma á dag.. ohhh þetta verður örugglega aldrei búið.
Ég er að tala um það að það eru fimm ár síðan ég fékk teina og ég
er búin að vera með þennan helvítis góm í þrjú og hálft ár. Hvenær
tekur þetta enda....
Verð að koma með smá nöldur hérna.... Finnst ykkur ekki geðveiki
að diesel buxur kosta upp í 24000 krónur. Hvar á þetta að enda.
Þetta fer alltaf hækkandi. Þú færð ekki nýju buxurnar undir 12000
eða 13000. Þetta er brjálæði! Vinnan við að búa þessar
flíkur til kostar örugglega ekki nema 1/8 af því sem þær eru seldar
á. Ég man eftir því þegar ég keypti mér diesel buxur í 8.
bekk eða eitthvað. Þá voru þær á 7000 og mér fannst það frekar
klikkað mikið... Það myndi ekki teljast neinn peningur fyrir
gallabuxur í dag. Svo er það einhvern veginn eins og þetta séu
einu gallabuxurnar! Endilega segið ykkar skoðun.
En ég er víst að fara í Eurovisionpartý á morgun, eða fer út að
borða á hótelinu og þar verður keppnin síðan sýnd
á widescreen... Þetta verður örugglega gaman, fæ
líka gott að borða
Aldrei hægt að kvarta yfir því.
Fæ lax í forrét og síðan fylltan lambahrygg og
eitthvað. Bað pabba reyndar um að sleppa eftirréttinum þar sem
ég er svo lítið fyrir svona kökur og svona, eins og þið
eflaust vitið.
Skrifa síðar....