Dagrún

Læknanemi í blíðu og stríðu

05.01.2009 23:08:38 / dagrun85

Jólafríið senn á enda...

Rosalega flýgur tíminn frá manni. Jólafríið að verða búið, því miður!

Ég og Hjalti erum búin að hafa það rosalega gott hérna í Reykjavík allan tímann. Skrítin jól og áramót en samt svo notarleg og skemmtileg. Við fengum fullt af gjöfum og þökkum kærlega fyrir okkur. Þemað í ár voru eva solo glös en við vorum að reyna að safna að okkur nokkrum fleirum í safnið og enduðum með að fá 18 stk. Ég var greinilega ekki að standa mig og sagði öllum það sama þegar fólk spurði hvað væri hægt að gefa okkur í jólagjöf. Síðan fengum við senseo kaffivél, fondue-sett, rosendahl bjórglös, 2 dúka, göngusokka, brauðrétti Hagkaupa og pening. Mamma gaf mér svo belti sem hún gerði sjálf úr fiskiroði og Hjalta bol (ekki úr fiskiroði þó ;)).
Frá Hjalta fékk ég svo Scarpa gönguskó og ég gaf honum camoflash buxur í stíl við úlpuna sem ég gaf honum í fyrra.

Ég er svo búin að vera alveg óþolandi öll jólin talandi um og skipuleggjandi allar þær fjallgöngur/gönguferðir sem ég ætla í í sumar. Er að verða búin að plata ansi marga með mér í jökulsárhlaupið næsta sumar og svo er stefnan tekin á að ganga Tunguheiði og jafnvel Reykjaheiði líka ;)

Ég átti svo afmæli milli jól og nýárs og þá héldum við smá afmælisveislu. Voðalega gaman!

Verkefnalistinn fyrir jólafríið var ansi langur og náði ég að gera flest allt sem ég ætlaði mér. Fyrir utan það að ég komst ekki eins langt með námsefnið. Mikill tími fór í barnaundirbúning og svo er ég næstum alveg búin með kjólinn sem ég var að prjóna. Þarf bara 15 mínútur til að klára hann en við þær þarf ég mömmu mér við hlið svo ég klúðri nú ekki neinu ;)

Síðan hef ég bara sofið MJÖG mikið og horft á marga þætti af Brothers & sisters.

Ætli það sé ekki best að fara að koma sér í háttinn bráðlega. Er að reyna að snúa sólarhringnum aftur í rétt horf svo ég nái nú að vakna í skólann á miðvikudaginn. Þó ég vonist nú til að vera farin að vinna í því að koma þessu barni í heiminn þá... því núna er markmiðið: því fyrr því betra!

Dagrún





» 5 hafa sagt sína skoðun

30.12.2008 00:25:28 / dagrun85

Búin að búa til barnasíðu

Loksins kom ég mér í að búa til barnasíðu.

Slóðin er: www.nino.is/hjaltabarn

Þið verðið svo bara að senda okkur e-mail til að fá lykilorðið - ekki vera feimin við það ef þið þekkið okkur eitthvað. Viljum bara fá að fylgjast með hverjir hafa aðgang að síðunni.

E-mailið er á síðunni, en annars er það dagrunj@simnet.is hjá mér en hjg13@hi.is hjá Hjalta

Kem svo með færslu hérna sem fyrst þegar ég hef tíma!


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.12.2008 13:49:43 / dagrun85

Brjálað að gera...

Já það er sko búið að vera nóg að gera. Svo mikið að ég hef lítið sem ekkert lært :( Búin að klára mig alveg út... En ég er komin í jólafrí...jibbý!
Reyndar þarf ég að læra helling um jólin en nú ætla ég líka að hvíla mig. Byrjaði að fá bjúg af einhverju ráði í fyrradag eftir erfiðan dag... Tærna alveg eins og á hobbita á kvöldin fyrir utan að þær eru ekki alveg eins hárugar ;)
En í dag er það 4 ára afmæli hjá Bryndísi og síðan stelpupartý í kvöld :haha:
Kem með betri færslu síðar..



» 5 hafa sagt sína skoðun

15.12.2008 21:56:03 / dagrun85

Skoðun

Ég fór sem sagt í auka skoðun á föstudaginn af því að ég var búin að vera svo rosalega veik af þessari gubbupest. Skoðunin gekk bara vel. Var reyndar með smá prótein í þvaginu af því að mig vantaði vökva, en það ætti að vera komið í lag núna. Barnið var bara hresst með fínan hjartslátt og búið að skorða sér. Sagði ljósmóðirin að þetta væri stærðarinnar barn, hvað sem hún meinti nú með því, en þetta var ekki mín ljósmóðir heldu önnur sem var að vinna þennan dag. Býst ég við að næst þegar ég fari í skoðun, þá komin 37 vikur, verði stærðin á barninu metin. Ég hafði reyndar ekkert þyngst frá því síðast en það má svo sem skýra út frá vökvatapinu og kannski örfáum grömmum sem hafa fokið með pestinni...
Gat loksins farið að borða almennilega seinni partinn á laugardaginn og er bara öll hin hressasta núna.

Búin að vera góð í grindinni núna í tæpar tvær vikur. Fæ bara smá verki af og til þegar ég beiti mér eitthvað vitlaust. Það var greinilega rétt ákvörðun hjá mér að snúa mér að göngu og sundi og sleppa leikfiminni þessar síðustu vikur.
Eina sem ég get kvartað yfir núna er þetta svefnleysi. Það er ekki alveg að blíva að ná loksins að sofna almennilega undir morgun og langa helst þá að sofa allan daginn! Gengur ekki alveg upp með skólanum, en um helgar er lögmálið hjá mér að sofa bara þegar ég get sofið :)

Sigurgeir og Ásdís komu til landsins í gærnótt svo við Hjalti fórum og hittum þau í hádeginu og eyddum með þeim deginum. Þau líta svo vel út og það var svo gaman að hitta þau og spjalla...
Við Hjalti náðum svo að klára jólagjafirnar í dag og ég er svo búin að skrifa nokkur jólakort í viðbót og pakka inn öllum pökkunum nema til hans.
Það er þó nóg eftir að gera fyrir jólin eins og að þrífa, klára jólakortin, versla í matinn (og kannski ákveða almennilega hvað við ætlum að hafa í matinn), gera ís og örugglega fullt fleira sem ég er búin að gleyma akkúrat núna.

En ég er orðin þreytt og bulla bara...
Dagrún



» 4 hafa sagt sína skoðun

12.12.2008 11:21:37 / dagrun85

Þegar þú heldur að þú hafir sjórn á öllu...

Þá kemur það fljótt í ljós að þannig er það alls ekki.
Þessi vika átti að vera ansi pökkuð verkefnum. Var búin að redda því að klára Klíníska aðferð (einn verklegur áfangi) í dag, byrja á rannsóknarverkefninu eins og ég þyrfti í bili og snúast aðeins fyrir jólin og heimilið ásamt því að reyna að ná upp öllum lestrinum sem ég hef verið hægt og sígandi að lenda alltaf lengra og lengra aftur úr. Nei þá fæ ég þessa ógeðslegu gubbu- og niðurgangspest. Lagðist á miðvikudaginn og ligg enn þá. Hef því tekist að komast ekki í rannsóknarverkefnið mitt, missa af verklega tímanum í Klínískri aðferð og hafa enga orku í að lesa né gera neitt annað. Svo eins og ég var skipulögð að klára ýmsa hluti áður en barnið léti sjá sig eru ekki að ganga alveg upp núna.

Var farin að hafa áhyggjur af sjálfri mér (aðallega barninu) á miðvikudagskvöldið þar sem ég hef aldrei á ævinni fengið svona slæma pest. Píndi samt ofan í mig vökva stanslaust allan daginn milli þess sem ég skilaði því aftur. Ferðirnar sem ég þurfti að hlaupa voru orðnar í kringum 30. Mamma var með þvílíkar áhyggjur því að svona fór hún af stað með Sigurgeir (6 vikum fyrir tímann). Var farin að skipuleggja hvernig þetta ætti að vera ef ég færi af stað því ég var að fá smá samdrætti um kvöldið enda ekki skrítið þar sem átökin við að æla komin 8 mánuði á leið eru ansi mikil. Hefði aldrei trúað því hversu erfitt getur verið að æla í þessu á sig komu lagi þó það sé nú reyndar alltaf erfitt og ógeðslegt. Í gær þar sem ég var enn þá veik ákvað ég að hringja í ljósmóðurina mína. Við ákváðum í sameiningu að ég myndi mæta í auka skoðun í dag. Það lítur svo sem ekkert illa út en við ætlum að tjékka á ketonkroppum í þvagi og athuga hvort statusinn á mér sé ekki í lagi. Barnið er a.m.k alveg vel sprækt því það hnoðast mikið svo enginn þarf að hafa áhyggjur! Ég á líka orðið ágætis forða af orku og er farin að geta borðað smávegis núna - 1 banani í morgunmat :haha:

Til að svara spurningunni um hvað það sé að pípettera þá var Andrea næst því að hafa rétt fyrir sér ;) Maður notar pípettur til þess að ná upp ákveðnum magni (mjög litlu magni - einhverja microlítra jafnvel) af vökva upp og setja í annað glas. Þá setur maður plastodd á græjuna og stillir hana á það magn sem maður ætlar að ná upp af vökva. Ýtir á takka niður að haki og heldur honum niðri á meðan maður stingur plasoddinum ofan í vökvann sem á að taka upp og sleppir takkanum en þá sogast vökvinn inn í plastoddinn. Síðan ýtir maður takkanum eins langt niður og maður getur (lengra en fyrst) þegar maður losar úr oddinum í annað glas.

En víst ég hafði orku í að skrifa heila færslu ætla ég að athuga hvort ég hafi smá orku í að lesa yfir fyrirlestra.

Dagrún

Sigríður: Það er orðið ansi langt síðan ég hef séð þig :) Við hittumst a.m.k. 19. desember ef allt gengur upp. Kannski fyrr ef þú hefur tíma út af prófunum og svona. Það yrði frábært ef krílið kæmi bara strax í byrjun janúar til þess að geta eytt smá vegis af jólafríinu í þetta, en við sjáum til...


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.12.2008 20:59:25 / dagrun85

Mánudagur

Langur og erfiður dagur að baki...
Er farin að sætta mig við það að ég hef ekki sömu orku og áður. Svaf illa í nótt svo eftir 6 tíma í meinafræði og vinnu á rannsóknarverkefninu mínu til rúmlega fjögur var ég alveg búin á því. Hefði helst þurft að lesa fullt eftir það, en ákvað að láta klukkutíma nægja... Óþolandi að komast ekki yfir efnið sem maður þarf að komast yfir en svona er þetta. Eitthvað af verkefnunum verða víst að bíða þar til í jólafríinu.

Annars leist mér ágætlega á vinnuna á rannsóknastofunni. Rosalega mikið dútl en þetta er fínt. Hef svo sem aldrei verið mjög hrifin af því að pípettera en þetta er ágætt ;)

Ætla að fara að koma mér bráðlega í rúmið!
Kveðja
Dagrún


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.12.2008 21:05:04 / dagrun85

34 vikur

Alltaf styttist þetta... Bara 6 vikur í áætlaðan fæðingardag!

Ég hef ekki setið auðum höndum í dag... Hef svo sem ekki gert mikið af viti en mikið hef ég þó brallað. Ég ákvað nefnilega að ég myndi eyða deginum með litla frænda mínum honum Baldri Þór. Náði í hann klukkan rúmlega 11 í morgun og lá leið okkar beint í Grafarvogslaugina. Þar fékk ég að hlaupa um laugina dragandi Baldur á einhverjum korki ;) Getum við sagt að það hafi bara tekið ágætlega á. Við fórum svo og fengum okkur ís, lékum okkur úti og höfðum það gott heima hjá mér til klukkan 17. Held að foreldrarnir hafi verið ansi fegnir að fá smá frí og geta keypt jólagjafir og svona :lol:

Annars virðist ég bara stækka og stækka og þyngjast og þyngjast. Er farin að reka mig utan í allt þegar ég geng um íbúðina :)

Í gær eldaði ég þessar dýrindis hreindýrabollur sem voru algjört æði. Verð bara að monta mig aðeins af þeim... Hjalti bjó til waldorfs salat og ég gerði svo líka sósu mmm...Finnst bara best í heimi að borða þessa dagana :d

Það sem er á dagskránni næstu daga er að:
  • Ég er að fara að byrja formlega á rannsóknarverkefninu mínu á mánudaginn eftir að hafa mætt á nokkra fundi með samstarfsaðilum mínum = leiðbeinendum mínum undan farnar vikur!
  • Við stelpurnar í bekknum ætlum að jólastússast á þriðjudags kvöldið. Sumar ætla að prjóna, aðrar að föndra, einhverjar að baka og ég og Svava erum að hugsa um að gera konfekt :) Bounty-kúlur verða það, en ég var reyndar að fatta að ég má víst helst ekki borða þær sjálf þar sem það er hrá eggjahvíta í því...
  • Læra, læra og læra aðeins meira...
Sigurgeir og Ásdís eru svo að koma til landsins á sunnudaginn næsta. Hlakka ég rosalega til að sjá aðeins framan í þau. Hef ekki séð þau síðan í september svo það er kominn tími til.

Ætla að halda áfram að horfa á sjónavarpið og hafa það notarlegt

Dagrún



» 4 hafa sagt sína skoðun

02.12.2008 21:39:18 / dagrun85

2. desember 2008

Takk öll sömul fyrir frábærar undirtektir á síðustu færslu. Frábært að fá svona mörg skemmtileg comment :)
Smá skilaboðaskjóða:

Hildur: Þú ert velkomin í kökur hvenær sem er :)

Edda: Það væri tilvalið að hittast og meðan við spjöllum geta strákarnir verið í tölvunni og án efa talað um fótbolta ;) Langar líka svo rosalega til að sjá sætu Emilíu þína sem er að bræða mig í gegnum netið ;D

Sonja: Þú ert æði :) Gangi þér vel í prófunum. Efast ekki um að þú brillerir!

Andrea: Hlakka til að sjá þig þegar þú loksins klárar prófin :) Vertu nú rosalega dugleg að læra... fyrir mig.

Svava Hrönn: Það er ekki að spyrja að dugnaðinum á þínu heimili. Standandi í veikindum, bakandi, haldandi veislur og fleira :) Knúsaðu stelpurnar frá mér...

Þórný: Er búin að vera þvílíkt dugleg að passa upp á grindina mína og er ég búin að vera miklu betri núna í tvo daga :) Hlakka þvílíkt til 19. desembers. Vonandi verð ég bara ekki orðin það feit að ég geti ekki sungið í singstar- hehe ;)

Knús á ykkur tvö í Hamragerðinu

Kristín: Strákarnir okkar eru dálítið líkir hvað þetta varðar að sveitin er best og verður alltaf best!

Ragga: Við reynum að hafa það rólegt og stressum okkur ekki um of á jólaundirbúningnum. Gæti trúað að drengurinn þinn myndi hringja bráðlega og biðja um uppskrift af einhverri smákökusort sem hann langar til að verðri líka bökuð á þessu heimili. Enda rosalega gaman að blanda saman hefðum úr tveimur fjölskyldum og búa til einhverjar nýjar ;) Heyrist á símtölunum hér daglega að það sé nóg að gera í kindastússi á þínu heimili. Bið að heilsa öllum!

Annars er litið að frétta af mér persónulega. Bakaði tvær smákökugerðir um helgina, lærði eitthvað aðeins og fór í sund. Tók svo góða æfingu í gær sem byrjaði á hálftíma gönguferð og síðan fullt af styrktaræfingum sem ég veit að reyna ekki á grindina hjá mér. Hef svo verið að kæla liðinn (bara einn sem er verstur) hjá mér á kvöldin og er miklu betri heldur en fyrir helgi. Má bara ekki sitja of lengi né standa of lengi kyrr. Verst er þó að labba niður stiga ef ég er verkjuð en þá er bara að halda sér í handriðið og mjaka sér niður ;)

Ég er komin á það stig að ná ekki að sofa nógu mikið. Sef svo laust að mér finnst ég meira dorma heldur en sofa helminginn af nóttunni og svo er ég alltaf að vakna bæði til að breyta um stellingar og til að fara að pissa. Reyni því að fara snemma í rúmið á kvöldin til að ná þeim tímum sem ég þarf.

Það er svo fyndið þegar maður talar um að eitthvað sé ekki að gerast hjá manni þá gerist það. Barnið sparkaði svona rosalega í mig í dag að það verkjaði (nýbúin að segja að það meiði mig aldrei). Kom svo heill fótur út úr bumbunni á mér og hann fór svo langt að ég gat kítlað tásurnar ;) Ekkert smá gaman...

En ég hef ekkert annað að tala um heldur en bumbuna mína og barnið inn í henni. Enda er spennan farin að magnast og mér finnst það einhvern veginn áhugaverðara umræðuefni heldur en krabbamein í munni og steralyf ;)

Kveðja
Dagrún sem er orðin aðeins of spennt fyrir barninu sínu og talar ekki um annað ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.11.2008 16:24:50 / dagrun85

33 vikur og 5 ára afmæli :)

33 vikur búnar og 7 vikur eftir í settan dag. Auk þess eigum við Hjalti formlega 5 ára afmæli í dag :) Í tilefni af því fórum við í jólabrunch á Nítjándu (í Turninum) í morgun... Rosalega gott að byrja daginn þar á yndislegum mat, jólaöli og góðri jólatónlist :)

Fór í 33 vikna skoðun á fimmtudaginn og þá leit allt svona rosalega vel út eins og alltaf. Blóðþrýstingur 110/70 og ekkert prótein, né sykur í þvagi og ég svona svaka spræk fyrir utan það að ég virðist vera komin með grindargliðnun. Fékk svona rosalega í grindina á miðvikudaginn þannig að ég varla gat labbað svo núna þarf ég að fara að passa mig. Barnið var í hörku stuði og virðist jafnvel vera að vinna í því að skorða sér a.m.k. miðað við verkina sem ég hef verið að fá þá vildi ljósmóðirin meina það en hún vildi ekki athuga það strax þar sem það er ótímabært (það er víst frekar vont að láta athuga það svo hún ákvað að hlífa mér líka). Á fimmtudagskvöldið fékk ég aftur svo mikla verki niður og samdrætti að ég hélt í smá stund að nú ætlaði ég kannski bara af stað en þeir fóru snögglega svo ætli líkaminn sé ekki bara aðeins að æfa sig... Fékk svo aftur verki og samdrætti einu sinni eða tvisvar í gær, svo það er allt frekar virkt þarna hjá mér!

Verð nú að deila með ykkur einni sögu af mér en ég er farin að halda að ég þjáist ekki bara að grindargliðnun heldur auk þess af greindargliðnun eins og sumir kalla það... ;) Ég ákvað að vera besta kærasta í heimi og koma karlinum mínum á óvart í morgun með pakka. Ég var mikið búin að pæla í þvi hvað ég gæti gefið honum sem myndi virkilega gera hann ánægðan. Ég vissi að blóm, súkkulaði og þess háttar myndi aldrei slá í gegn en allt í einu datt mér í hug gjöf sem ég vissi að myndi gera hann virkilega hamingjusaman - FM 2009. Ég dreif mig því í búð og keypti tölvuleikinn í gær. Faldi hann í töskunni minni og geymdi hann þar þangar til í morgun. Þegar ég vaknaði í morgun var ég svo spennt að láta Hjalta hafa pakkann að ég dreif mig að ná í hann og skreið með gjöfina upp í rúm til hans. Ég sagði við hann að hann yrði að lofa mér einu að þetta myndi ekki hafa áhrif á gengi hans í prófunum. Ég virkilega spennt að sjá hversu ánægður hann yrði rétti honum gripinn. Hann leit á hann og svo á mig...
Hjalti: "Dagrún ertu viss um að þetta sé leikurinn sem þú ætlaðir að kaupa"
Ég: "Já FM 2009 :haha:"
Hjalti: "Nei Dagrún þetta er FIFA 2009"
Ég: "Nei"
Leit á pakkann og þar stóð stórum stöfum FIFA 09! Djöfullinn vitlaus fótboltaleikur! Ég hafði á einhvern ótrúlegan hátt tekist að kaupa vitlausan leik sem ég skil ekki hvernig ég fór að. Við reyndar gátum oltist um af hlátri í staðinn svo gjöfin verður a.m.k. eftirminnileg og áðan fórum við og skiluðum leiknum og keyptum réttan ;)
Ég bara næ því ekki hvernig heilabúið í mér virkar þessa dagana því auk þess að hafa keypt vitlausan leik gat ég ekki munað í gær hvar Office 1 væri þó ég hefði komið þangað áður fyrir svona tæpu ári síðan. Alveg með eindæmum vitlaus ;)

En ég get a.m.k. montað mig af einu. Við Hjalti kláruðum að kaupa jólagjafirnar áðan þ.e. þær sem við gefum saman. Nú á ég bara eftir að kaupa handa honum (og reyndar líka fyrir Svövu ;)) og hann handa mér!

Á fimmtudaginn skráðum við Hjalti okkur í sambúð. Svo sem ekki frásögu færandi nema það hvað Hjalta fannst erfitt að breyta lögheimilinu sínu frá Fjöllum II til Reykjavíkur. Þið hefðuð átt að sjá hann :haha: Þið sem þekkið hann getið a.m.k. ímyndað ykkur hvernig þetta fór allt saman fram :)

En nú ætla ég að fara að gera eitthvað skemmtilegt eins og að baka, skrifa jólakort eða bara hanga eitthvað með mínum sambýlismanni þ.e.a.s. ef hann nennir því hann er svo upptekinn í nýja leiknum :) Við ætlum svo að eiga notarlegt kvöld heima í rólegheitum...

Þar til næst
Dagrún og dansandi bumbuskott ;)



» 13 hafa sagt sína skoðun

25.11.2008 20:59:27 / dagrun85

Geisp

Litla bumbuskottið mitt virðist vera letihaugur. Finnst svo oft konur vera að tala um hversu mikið börnin dúndri í þær og meiði, en mitt virðist finnast best að sofa þessa dagana og ef það er vakandi er eins og það sé að dunda sér í mestu makindum án þess að láta allt of mikið fara fyrir sér. Finn það bara ýta hér og þar og snúa sér aðeins reyndar fyrir utan danstaktana á laugardagskvöldið sem voru rosalegir ;) Vonandi verður það bara svona stillt og gott þegar það kemur út!

Vá hvað orkan fer dvínandi þessa dagana. Eftir að vera búin að vera í skólanum, skoða smásjársýni, versla og að lokum elda smá kvöldmat í dag langaði mig mest upp í rúm að sofa. Ákvað að láta það eftir mér að skríða upp í rúm og gera það sem enginn námsmaður á að gera þ.e. að lesa upp í rúmi. Hjalti liggur svo hliðina á mér og les skáldsögu sem hann þarf að vera búinn með fyrir morgundaginn. Hjalti kom svo skemmtilega orðum að því að í fyrsta skiptið núna væri jafn mikið að gera hjá honum í skólanum og er alla daga hjá mér. Og hann er að drukkna ;)

En mig langar að óska Ósk og Guðmanni innilega til hamingju með stúlkuna þeirra sem fæddist í dag :) Það er spurning hvort ég komi svo með strák og Sigríður með stelpu, svo það verði strákur, stelpa, strákur, stelpa og að strákarnir í ættinni eigi stráka og stelpurnar stelpur ;)

Ætla að fara að klippa hárið á Hjalta...

Dagrún





» 4 hafa sagt sína skoðun

22.11.2008 23:18:47 / dagrun85

Laugardagskvöld

og ég sit ein heima fyrir framan tölvuna og hlusta á tónlist. Finn það reyndar greinilega að ég er ekki ein á ferð því bumbuskottið mitt dansar látlaust við tónlistina enda hátalarnir alveg við bumbuna :) Ekki ætlar þessi myndasíða hérna á blogcentral að lagast svo engar bumbumyndir heldur í þetta skiptið, en þeir sem eru með facebook geta litið við þar og séð hversu stór ég er að verða ;) Svo er ég alltaf á leiðinni að fara að búa til einhverja barnasíðu en kem mér bara aldrei í það, enda má það svo sem bíða aðeins.

Átti svona rosalega fínan dag. Byrjaði daginn í baðstofunni í World class Laugum með hóp af bumbulínum og þjálfurum. Þvílíkt gott að byrja daginn á gufu, heitum pottum og góðum hádegismat í frábærum hóp. Væri til í að byrja alla laugardaga svona :)
Síðan lá leiðin í kaffiboð í tilefni af því að langamma mín hefði átt að eiga afmæli í dag. Þar hitti ég fullt af skemmtilegum ættingjum og borðaði góðan mat.

Reyndi svo að þrífa aðeins en varð því miður að hætta sökum verkja í grindinni. Líkaminn ákvað allt í einu að byrja að láta mig finna fyrir því að ég væri ólétt og má ég passa mig á að taka ekkert á sacroiliaca liðnum hægra meginn sem er mun erfiðara en ég hélt.

Við Hjalti tókum stóra ákvörðun í síðustu viku... Við ætlum sem sagt að vera hérna fyrir sunnan bæði jól og áramót. Nokkrar ástæður fyrir því en þá get ég lært meira, við getum undirbúið komu barnsins sem fær að sitja á hakanum sökum tímaleysis fram að jólum, ég næ að hvíla mig án þess að þurfa að þeytast í bíl milli landshluta og ég verð á staðnum þar sem ég ætla að eiga ef svo færi að ég færi af stað fyrir tímann. Ætlum að borða hjá Árna Þór og Arndísi á aðfangadagskvöld og hafa það svo bara notarlegt heima. Eigum líka svo mikið af ljúffengum mat í frysti svo við getum haldið góð matarjól með hreindýri, gæs og lambakjöti og já rjúpan á eftir að koma í hús :)

Nú er ég að verða ansi þreytt svo ég held ég haldi í rúmið. Enda bíður lærdómurinn eftir mér á morgun og svo auðvitað jólabaksturinn sem á að gera annað kvöld með Ingu og Andreu :)

-Dagrún-




» 8 hafa sagt sína skoðun

20.11.2008 11:44:06 / dagrun85

Ég nenni ekki...

Letin er að hellast yfir mig... Nenni ekki að lesa meira. Komin með ógeð af lungnasjúkdómum, og kem mér ekki í að klára að komast yfir helv**** kaflann.

Ætlaði aldrei að koma mér á fætur í morgun, enda nóttin frekar viðburðarrík. Byrjaði á því að klukkan hálf fimm var mér svo mál að pissa að ég varð að fara á fætur, gat samt fljótt sofnað aftur, en vaknaði síðan (í fyrsta skiptið) með svona þvílíkann sinadrátt í kálfanum. Mér brá svo og þetta var svo vont að ég veinaði og lamdi Hjalta sem vaknaði þvílíkt áhyggjufullur og hélt að eitthvað stórvægilegt væri að hjá mér...;) Eftir að hafa komist í gegnum þetta sofnaði ég aftur. Var svo hálf vakandi megnið af morgninum enda ætlaði barnið út úr bumbunni í gegnum kviðvegginn á mér með löpp út á einum stað, olnboga á öðrum stað og bakið hinum meginn. Þegar ég ætlaði svo að fara á fætur þá loksins gat ég sofið... alveg týpískt. Ákvað því að leyfa mér það bara, enda dugleg að læra í gærkvöldi :)

Í gær fórum við Hjalti í seinna skiptið á foreldrafræðslunámskeiðið. Mér fannst þessi tími miklu skárri en síðast og var mjög ánægð með heimsóknina upp á fæðingardeild. Er ég búin að ákveða að reyna að eiga í Hreiðrinu og fá bað til nota í hríðunum og jafnvel eiga í vatni ef mér líður þannig þegar að því kemur! Þvílíkt kósý þarna inn á Hreiðrinu... og er ég bara farin að hlakka aðeins til að takast á við þetta þó það sé nú líka smá kvíði.

Gerði svo góða hollustu íslenska kjötsúpu í gær sem ég ætla að fara að borða afganginn af... mmm

Kveðja
Dagrún


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.11.2008 16:11:20 / dagrun85

18. nóvember 2008

Bara svona til að fyrirbyggja misskilning þá er Hjalti mjög duglegur að hjálpa mér :) Hann er orðinn helvíti öflugur á þvottavélinni og er ég ekki frá því að hann hengi oftar upp úr vél heldur en ég, svo hjálpumst við yfirleitt alltaf við að elda og uppvaskið skiptumst við á að gera. En það er ekki með þar með talið að ég þurfti samt ekki að gera þessi húsverk, en ég er alls ekki ein með þau..!

Ég reyni að ofgera mér ekki. Ákvað því að fara að sofa klukkan 9 í gærkvöldi og ætla að taka mér frí í leikfiminni í dag og á morgun, en mæta frekar galvösk á fimmtudag og föstudag.

Annars er dagurinn í dag miklu betri. Búin að fara í mína fyrstu krufningu, skoða sýni eins og brjálæðingur með Svövu og nú tekur við lesturinn.

Dagrún

Svava: Takk sömuleiðis fyrir daginn Svava mín. Við erum ansi öflugar í að sjá neutrophila/granulocya og ímynda okkur allt annað sem við eigum að sjá í þessum frumuhrúgum ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 14:42:29 / dagrun85

Bara stutt í dag...

Ég:
  • Er komin með nýtt æði. Brauð með kindakæfu... Veit ekki hvað ég er búin að borða margar brauðsneiðar með kindakæfu síðast liðna 5 daga!
  • Er komin með of mörg verkefni á herðarnar!
  • Er að farast úr stressi allt í einu... höndla ekki alveg allt sem er um að vera: skólinn, námskeið, heimalærdóm, rannsóknarverkefni, meðgönguleikfimi, félagslíf, sækja um fæðingarstyrk, þrífa heimilið, elda matinn, þvo þvott, ganga frá barnadóti, mæta í skoðanir, keyra og keyra á milli og fleira.
  • Gerði mig að algjöru fífli áðan fyrir framan leiðsagnarkennarann minn í verkefninu - var frekar þreytt og utan við mig - hann heldur örugglega að ég sé furðulegasta manneskja í heimi 8|
  • Er með hormónin í hámarki svo það er auðveldara að grenja en að takast á við vandarmálin.
  • Er ógeðslega þreytt og hugsaði mikið um að skrópa fyrst í morgun, en ákvað að vera dugleg... En vitiði hvað kennarinn mætti ekki sem átti að kenna okkur fyrstu tvo tímana svo ég hefði alveg eins getað skrópað og verið í staðin mun hressari fyrir vikið :(
Svo dagurinn í dag er ekki minn dagur...

Dagrún


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 12:12:11 / dagrun85

Yndislegt veður

Það er svo yndislegt veður hérna... snjór yfir öllu, mikið frost, stillt og sólskín. Í tilefni af því dreif ég mig út í gönguferð... Var búin að gleyma því hvað það er gott að labba í sveitinni... Bara ég og náttúran. Söng hátt og mikið alla leiðina út afleggjarann bara svona af því að ég vissi að enginn heyrði í mér :d

Annars eigið góðan dag :)

Dagrún


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 91873
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 559 dögum
Áætlaður fæðingardagur